Menntasjóður námsmanna.
Forseti. Það væri óskandi að við værum í dag að samþykkja nauðsynlegar breytingar á lögum til að svara ákalli stúdenta um heildstæða endurskoðun á Menntasjóði, með hækkun framfærslulána, bættum vaxtakjörum og auknum sveigjanleika stúdenta til að haga sínu námi eftir þörfum og getu án refsinga og hindrana. Menntun er gríðarlega arðbær fjárfesting fyrir samfélagið og það er brýnt verkefni að tryggja að sú staðreynd endurspeglist í lögum um Menntasjóð sem það gerir ekki í dag, því miður. Frumvarpið sem við greiðum atkvæði um núna nær alls ekki utan um þennan afkomuvanda sem stúdentar standa frammi fyrir en felur samt sem áður í sér jákvæðar breytingar eins og brottfall ábyrgðarmannakerfisins, sem við Píratar styðjum en höfum samt áhyggjur af því að breytingin verði erfið fyrir þá einstaklinga sem eru í vanskilum og skilgreindir sem ótryggir lántakendur, sem fái þannig ekki námslán. Langeinfaldast hefði verið að fjarlæga kröfu um trygga lántakendur úr lögum og höfum við Píratar lagt fram breytingartillögu þess efnis til þess einmitt að tryggja öllum aðgengi að námi, óháð efnahagslegri og félagslegri stöðu. Það er gríðarlega mikilvægt.