hafnalög.
Virðulegi forseti. Hér er mikilvægt frumvarp sem er að verða að lögum og staðfestir eldisgjaldið sem sveitarfélögin geta beitt með því að taka gjald af þjónustu vegna þessarar nýju atvinnugreinar. Það er sett í hendur sveitarfélaganna að setja þennan ramma og er með þessu ákvæði verið að festa það að sveitarfélög geti stýrt þessu sjálf. Það er mikilvægt því að áður var lagaóvissa um þessa nálgun og ég held að það sé mjög mikilvægt að við séum að festa hér í sessi ákvæði sem sveitarfélög hafa verið að kalla eftir frá 2017.