154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:23]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð nú að byrja á því að þakka þingmanninum fyrir afar áhugaverða ræðu. Við höfum átt mjög gott samstarf, leyfi ég mér að segja, í fjárlaganefnd og munum eflaust gera það áfram. Auðvitað verð ég að taka fram að mér sárnaði svolítið þegar þingmaðurinn tók til orðalagsins „drasl“ um áætlunina, en hann hefur auðvitað rétt á sínum skoðunum. Mér fannst aftur mjög áhugavert að sjá notkun hans á gervigreind og ég horfði yfir öxlina á honum og átti við hann samtal ekki alls fyrir löngu um hvernig gervigreind gæti nýst. Eins og gefur að skilja erum við náttúrlega ekki sammála í stjórnmálum þótt við séum sammála um ýmislegt, sérstaklega kannski aðferðafræði, en gervigreindin getur svo sannarlega nýst á margan hátt. Á meðan ég hlustaði á ágæta ræðu þingmannsins þá sló ég inn í gervigreindina spurningunni: Hvert er vandamál Pírata á Íslandi? Með leyfi forseta, langar mig að lesa svar gervigreindarinnar sem sýnir bara hvert við erum komin í því:

„Píratar hafa oft verið gagnrýndir fyrir að vera ekki nægilega samkvæmir sjálfum sér og hafa ekki nógu skýra stefnu í málaflokkum. Þeir hafa lagt mikla áherslu á einstaklingsfrelsi og lýðræði en stundum skortir á djúpa og nákvæma stefnu í hefðbundnum málum eins og efnahags- og velferðarmálum.“

Gervigreindin er til margs nytsöm og fyrsta spurning mín til hv. þingmanns er: Hvernig miðar okkur áfram þar? Hvað getum við gert betur í fjárlagavinnunni með því að nýta okkur gervigreindina?