154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[22:50]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla að þakka hv. þingmanni, formanni atvinnuveganefndar, Þórarni Inga Péturssyni, fyrir framsöguna. Ég get tekið undir margt í þessu. En það sem mig langar að beina sjónum að hér í fyrstu umferð er: „Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar.“ Þetta er fyrsta setning 1. gr. í 1. kafla laga um stjórn fiskveiða sem hér er verið að leggja til breytingu á. Ég velti fyrir mér í ljósi þeirrar umræðu sem verið hefur um þetta mál og ekki síður og enn frekar í ljósi þeirra erfiðleika sem við sem höfum barist fyrir því að eignarhald þjóðarinnar á þessum sömu nytjastofnum verði endanlega staðfest með auðlindaákvæði þar sem kveðið er á um tímabindingu á nýtingu auðlindarinnar: Hefði að mati hv. þingmanns ekki farið vel á því að það væri eitthvert samspil á milli þessara þátta nú þegar verið er að kvótabinda enn eina nytjategundina, og þær eru nú ekki margar eftir, inn í þetta? Að nýta þetta samspil, fá það eiginlega upp á yfirborðið í eitt skipti fyrir öll hverjar afleiðingar þess væru að tímabinda slíka afhendingu. Mögulega gæti það verið reynsla sem skapaðist sem gæti hjálpað þinginu í gegnum það öngstræti sem við erum búin að koma okkur í með að geta ekki klárað auðlindaákvæði í stjórnarskrá, að meiri hlutinn stendur í vegi fyrir því. Getum við ekki nýtt okkur svona mál til að nota sem prófstein á þetta? Hvort við gætum, í staðinn fyrir að fara þá leið að afhenda þetta á sama hátt og aðrar auðlindir hafa verið afhentar, aðrir fiskstofnar, farið út í það að festa þetta tímabundið. Ég hefði áhuga á að heyra hvað hv. þingmaður hefur um það mál að segja.