154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[23:58]
Horfa

Frsm. 4. minni hluta (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Hv. þingmaður sagði að kvótasetning á grásleppu og það frumvarp sem hér er til umræðu væri á skjön við stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Nú er staðan þessi: Það er ráðherra þeirrar hreyfingar sem leggur til sambærilegt frumvarp því sem hér er til umfjöllunar á síðasta löggjafarþingi. Svo gerist það að málið kemur fram af hálfu atvinnuveganefndar. Málinu er hleypt í gegnum atvinnuveganefnd í krafti þess að Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn fara með meiri hluta í þeirri nefnd og ekki nóg með það heldur virðist vera lögð svo mikil áhersla á þetta mál í stjórnarmeirihlutanum að þetta er eitt af þeim málum sem kemst í gegnum nálarauga þinglokasamninganna þrátt fyrir að stór hluti stjórnarandstöðunnar hafi lagt áherslu á að þetta mál færi út og yrði ekki að lögum. Nú veit ég ekki hvað stendur nákvæmlega í einhverjum landsfundarályktunum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. En hvernig er hægt að túlka þá atburðarás sem ég hef lýst hér öðruvísi en svo að það sé einbeittur ásetningur Vinstri grænna að þetta frumvarp verði að lögum?