154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[00:04]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fína ræðu hér áðan. Ég er svolítið á sömu slóðum og ég var í fyrra andsvari. Ég get tekið annað en staldrað við það. Nú er þetta ekki stjórnarfrumvarp. Þetta er ekki samþykkt í ríkisstjórn, þetta er ekki samþykkt á ráðherrafundi í ríkisstjórn og forseti kvittar ekki upp á þetta sem stjórnarfrumvarp þannig að ríkisstjórn Íslands er ekki háð því að þetta mál nái fram að ganga. Matvælaráðherra í ríkisstjórn Íslands er úr Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Ég get ekki séð að stjórnarmeirihlutinn sé í hættu þó að þetta frumvarp verði fellt. Það væri gaman að heyra álit hv. þingmanns á því. Ef þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs greiða atkvæði gegn þessu frumvarpi hefur það ekkert með stjórnarmeirihlutann að gera, ekki neitt. Þetta er ekki stjórnarfrumvarp. Þannig að það væri gott að heyra álit hv. þingmanns á því hver afstaðan er til þess og hvort það sé flokksagi til að halda ríkisstjórninni gangandi eða ekki í þessu máli hjá Vinstri grænum. Ég get ekki séð annað og ég tek heils hugar undir þau orð sem hér voru látin falla að það er algerlega með hreinum ólíkindum að þetta mál skyldi í fyrsta lagi fara út úr nefnd og hafi í öðru lagi lent í þinglokasamninga gagnvart stjórnarmeirihlutanum. Þetta snýr ekki stjórnarmeirihlutanum, þetta snýr að nefndinni. Matvælaráðherra Vinstri grænna sem fer með forræði á málaflokknum kemur ekki nálægt þessu máli. Þetta frumvarp var lagt fram í fyrra af hæstv. matvælaráðherra en ekki í ár. Þannig að vilji ráðherrans er alveg skýr. Hún vill ekki leggja þetta fram. Ráðherrann vill ekki leggja þetta fram. Það væri gott að fá að heyra álit hv. þingmanns á þessu og líka varðandi það hvort við séum ekki bara að sjá að baki áratugamenningu (Forseti hringir.) í sjávarbyggðum, varðandi grásleppuveiðar, (Forseti hringir.) svo að ég tali ekki um framsalið.