154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[00:06]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vísa svo sem bara til svara minna hér í fyrri andsvörum. Sannarlega hefur verið bent á það hér að þetta er ekki stjórnarfrumvarp. Það er mjög óvenjulegt að fá þetta fram með þessum hætti og líka mjög sérstakt að sjá þetta hljóta það brautargengi að vera komið hér inn og alla vega í óþökk sumra. Ég held að það séu ekki vinnubrögð sem ég get samþykkt eða finnst í lagi persónulega, bara til að segja það hér. Mér finnst það bara til vansa í þessu að við skulum standa í þessum sporum. Ég tala út frá minni sannfæringu í þessu og stefnu flokksins. Auðvitað er það síðan okkar allra, hvort sem það er ég eða aðrir þingmenn flokksins og aðrir þingmenn hér, að kjósa út frá sinni sannfæringu um mál ef það kemur til atkvæðagreiðslu um það. Þetta er afskaplega óvenjuleg leið sem hér er farin og mér finnst einfaldlega vera lítill sómi að.