veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að koma inn á akkúrat þetta, tímabindingu aflaheimilda og þá sérstaklega, á aðeins breiðari grunni, tímabundna nýtingu náttúruauðlinda, að það sé tímabundið. Við höfum náttúrlega verið í þeirri umræðu á fleiri sviðum og ég tek undir það og ég er sannfærður um að slíkar hugmyndir geti átt brautargengi í mínum þingflokki. Ég trúi því að það að tímabinda eins og í þessu tilviki aflaheimildir til ákveðins tíma sé ákveðin lausn á málefninu og það að veita heimildir til nýtingar náttúruauðlinda og hafa það tímabundið sé mikilvægt líka til að tryggja að við sitjum ekki uppi með þá stöðu að fólk telji sig geta farið með þær sem sína eign. Þannig að fyrir mitt leyti er ég mjög til í að tala fyrir slíku og eiga gott samtal við aðra um það. Ég þakka líka hv. þingmanni fyrir að hafa nefnt þetta sérstaklega hér áðan (Forseti hringir.) sem ég heyrði í andsvörum hér í upphafi og tók eftir (Forseti hringir.) og fannst gott.