154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[10:37]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við í Viðreisn höfum stutt það eindregið að eignarhald ríkisins á bönkunum hafi verið brotið upp og við höfum stutt söluna á Íslandsbanka og lagt sérstaklega áherslu á að andvirðið verði sett í niðurgreiðslu skulda og að fara í einskiptisaðgerðir í innviðafjárfestingum. Það er síðan ljóst að okkar mati að þetta gerir ekkert annað en að fara í hítina eins og reynslan er og að mínu mati er það dálítið í samræmi við grafskrift þessarar ríkisstjórnar, undir forystu Sjálfstæðisflokksins, að hún hafi tryggt það að ríkissjóði hafi verið skilað í halla í a.m.k. 11 ár. Hitt er síðan að eftir fíaskóið við aðra sölu Íslandsbanka var ljóst að það þurfti að byggja upp traust, það þurfti að byggja upp trúverðugleika og að skilningur við ferlið yrði til staðar. Þar vega sjónarmið um jafnræði og gegnsæi mjög þungt þegar kemur að sölu á eigum almennings. Því hefur ekki verið sinnt. Og til viðbótar þessu öllu og líka lítilli tiltrú almennings á ríkisstjórninni (Forseti hringir.) þá er ekki gott veganesti inn í svona mikilvægt söluferli, þessi mikla tortryggni (Forseti hringir.) innan sundurlausrar ríkisstjórnar. Þess vegna teljum við í Viðreisn, að öllu þessu sögðu, að það sé skynsamlegt að þetta brýna verkefni verði sett yfir á nýja ríkisstjórn.