154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[10:44]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Við, eins og í Viðreisn, sem viljum losa um eignarhald ríkisins á mörgum eigum vitum að þá skiptir traust og trúverðugleiki lykilmáli. Þá skiptir máli að almenningur skilji í hvaða vegferð við erum að fara með ríkiseigur og að við erum að nota söluna á ríkiseigum til að byggja upp samfélagið, byggja upp innviði og greiða niður skuldir. Það er vont þegar meiri hlutinn og ríkisstjórnin skilur ekki, m.a. eftir þrjú fjármálaráðherraskipti þar sem rótin er síðasta sala á bankanum, fíaskóið í annarri sölu, að hún skuli ekki enn vera búin að átta sig á því að það þarf að gera meira heldur en gert hefur verið núna í þessari vinnu. Það hefur lítið verið gert með ábendingar Samkeppniseftirlitsins. Það hefur lítið verið gert með mjög skýra umsögn Seðlabanka Íslands. Þess vegna teljum við í Viðreisn, sem er mjög fylgjandi því að ríkið sé ekki með puttana í öllu, (Forseti hringir.) að það þurfi að vanda betur til verka. Þess vegna er þetta ákall okkar til ríkisstjórnarinnar (Forseti hringir.) að hægja á og að þingið — já, við tökum í þetta og erum til í að vinna málið betur en ekki afgreiða það út með hraði.