154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[11:02]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það ber auðvitað að fagna því að við skulum eftir sex ára baráttu vera að ná þessu máli í gegn. Það er ástæða til að hrósa hv. formanni atvinnuveganefndar, Þórarni Inga Péturssyni, og hans fólki þar sem hefur unnið ötullega að þessu máli og reynt að leysa úr því eins og best verður á kosið. Smábátakerfið hefur átt undir högg að sækja á undanförnum árum. Það átti sér m.a. stað með breytingum sem gerðar voru á því þegar stærðartakmörkunum var breytt og stærri bátar heimilaðar í því á sínum tíma. Fyrir litlar útgerðir eru grásleppuveiðar ein stoð undir því kerfi og það er mjög mikilvægt fyrir það fólk sem hana er að stunda í dag og ætlar að byggja sig upp á þeim vettvangi að hafa fyrirsjáanleika og hámarkshagkvæmni. Það eru dæmi um það að menn eigi tvo báta, bara til að geta farið á tvöfalt dagakerfi. Ef þeir hafa sínar aflaheimildir geta þeir gert þetta með miklu hagkvæmari hætti. Þetta eykur styrkinn. Við setjum kvótaþakið mjög lágt í þessu þannig að stórútgerðir fari ekki inn í þetta. (Forseti hringir.) Við tryggjum þannig að þetta verður í smábátaútgerð og þetta verður stoð fyrir þá sem eru í alvörurekstri á þeim vettvangi. Þetta á þingheimur að skilja.