fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegur forseti. Ég sem áheyrnarfulltrúi lýsti mig samþykkan meirihlutaáliti og rökstuddi þá ákvörðun mína á þann hátt að um væri að ræða mál sem væri hluti af gerð kjarasamninga. Í mínum huga er hér um að ræða mjög mikilvægt mál og löngu tímabært. Það er réttlætismál að nýbakaðir foreldrar í fæðingarorlofi geti lifað af þeim fjármunum sem þeir fá úr Fæðingarorlofssjóði. Miklar umræður áttu sér stað í nefndinni, m.a. um dagsetningar, og erfitt að finna hvar draga ætti strik í sandinn sem gerði alla sátta. Það var reynt og lagði meiri hlutinn til breytingar þar að lútandi og þar hefði mátt ganga lengra eins og í svo mörgum málum. En nú hafa verið lagðar fram breytingartillögur við frumvarpið sem mér finnst bæta málið og ég mun eiga auðvelt með að greiða þeim atkvæði.