154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

910. mál
[11:22]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þingflokkur Miðflokksins styður þetta mál. Þetta er búið að vera eitt af stóru vandamálum kerfisins eins og það hefur verið, þetta lága þak sem orsakar það að það foreldri sem hærri hefur launin hefur oft á tíðum dregið úr töku orlofs vegna þess tekjumissis sem það skapar. Ég held að þetta sé raunverulegt jafnréttismál, af því að það eru svo mörg þeirra sem hér fara í gegn sem hafa ekki sömu áhrif eins og lýst er yfir að eigi að vera að koma fram. Ég vil jafnframt minna á að næsta skref vona ég að verði til að draga úr þeirri forsjárhyggju sem umlykur þetta kerfi þar sem foreldrar eru þvingaðir til þess að nýta orlofið í þeim hlutföllum sem ríkisstjórninni hugnast í stað þess að foreldrum sé treyst til að skipta fæðingarorlofinu með sér þannig að barninu henti best. En ég ítreka að þingflokkur Miðflokksins styður þetta mál og mun jafnframt styðja við tillögur minni hluta nefndarinnar sem hér koma fram og til atkvæðagreiðslu.