fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Frú forseti. Þetta er gott mál og ég fagna því að það skuli vera komið hingað fram. Hv. þingmaður Viðreisnar, Guðbrandur Einarsson, hefur lýst því yfir að við styðjum þetta mál og að við styðjum breytingartillögurnar. Ég minni á að undir árslok 2020 þegar málið var til umfjöllunar hér lögðum við í Viðreisn fram tillögu sem fól einmitt í sér að hámarksfjárhæð greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði yrði hækkuð úr 600.000 í 800.000. Þessi tillaga okkar var lögð fram af því að það var raunverulega mikilvægt skref í átt að raunverulegu jafnrétti og raunverulegu valfrelsi foreldra og um þetta þarf þetta alltaf að snúast. Við styðjum því þessa breytingartillögu, fögnum því að hún sé komin fram aftur og vonum að hún nái í gegn að þessu sinni.
Svo fagna ég sem Reykvíkingur áhuga hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur á Reykjavík en er þó sammála samflokkskonu hennar, Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, um að þetta snýr að öllum sveitarfélögum. Það er engin ástæða til að hafa meiri áhuga eða bera velferð ungra foreldra í Reykjavík meira fyrir brjósti en annarra. Þetta segi ég sem Reykvíkingur. (Gripið fram í.) Það skiptir máli að við séum öll hér — og ég geld sérstaklega varhuga við því að í tillögum eins og komið hafa upp í sumum nágrannasveitarfélögum sé verið að gera greinarmun á tekjum foreldra þegar verið er að leysa þessi mál. Við þurfum að leysa þetta fyrir allar barnafjölskyldur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)