154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

910. mál
[11:26]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Eitt það jákvæða við íslenskt atvinnulíf er að þátttaka kvenna er með allra mesta móti. Það er tvennt sem skýrir það, það er annars vegar mjög framsækin löggjöf um fæðingarorlof og hins vegar mjög gott aðgengi að leikskólum. Það mál sem við erum að fjalla um hér í dag er stórkostlega gott. Ég vil líka nefna það vegna þess að ákveðnir þingmenn hafa verið að nýta ferðina til að hnýta í borgaryfirvöld og ég bara hafna því. Það var Reykjavíkurborg á sínum tíma sem fjárfesti stórkostlega í leikskólum landsins og við njótum þess enn í dag. Auðvitað má alltaf gera betur en leyfum þeim sem hafa rutt brautina að njóta þess. Mig langar sérstaklega að segja: Þetta er hjartans mál Framsóknarflokksins og það var hann Páll Pétursson heitinn sem ruddi brautina á sínum tíma. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)