fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegi forseti. Já, ég ætla að þakka rauðsokkunum, Kvennalistanum og konum í öllum stjórnmálaflokkum sem hafa barist fyrir fæðingarorlofi og ég ætla líka að þakka körlunum sem hafa tekið þátt í þessari mikilvægu baráttu, því að hún skiptir máli. En mikið svakaleg viðkvæmni er hér hjá þingmönnum Reykjavíkur sem styðja meiri hlutann í Reykjavíkurborg. Ein lítil dæmisaga: Ég á tvö systkinabörn; stúlku sem býr í Mosfellsbæ og varð tveggja ára núna fyrir nokkrum vikum síðan en hún er búin að vera í ár á leikskóla. Svo á ég lítinn frænda í Reykjavík sem varð líka tveggja ára fyrir nokkrum vikum síðan. Hann er ekki enn þá kominn inn á leikskóla og hann vonandi fær leikskólapláss í september/október. Þetta er munurinn á tveimur sveitarfélögum hérna á höfuðborgarsvæðinu. Sveitarfélögin þurfa öll að taka sig á í þessari þjónustu en það er öskrandi hvað leikskólaþjónusta í höfuðborginni er lök. Það eru 800 börn á biðlista hér í þessari borg. Borgin þarf að taka sig á en hin sveitarfélögin eiga að sjálfsögðu að gera það líka. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)