154. löggjafarþing — 131. fundur,  22. júní 2024.

lögreglulög.

707. mál
[23:34]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég fagna mjög að þetta frumvarp sé nú að verða að lögum enda löngu tímabært að skýra heimildir lögreglu til að grípa til aðgerða í þágu afbrotavarna, einkum til að sporna við skipulagðri glæpastarfsemi og koma í veg fyrir athafnir er áhrif geta haft á öryggi ríkisins. Ég fagna því einnig mjög að þetta frumvarp njóti svo mikils stuðnings hér í þingsal sem ég vænti í atkvæðagreiðslunni. Ég vil nýta tækifærið og þakka hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir frábært samstarf, frábæra vinnu og sérstaklega formanni nefndarinnar, hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur.