fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svarið. Í mínum huga er það alveg klárt mál að þetta fjárlagafrumvarp minnkar ekki væntingar til verðbólgu. Það er raunverulega fjárlagafrumvarpið sem var fyrir þetta ár sem gerir það meira. Það er kröftugra hvað varðar aðhald; 1,6% á móti 0,9% í fjárlagafrumvarpi sem við erum að ræða hér fyrir næsta ár.
Annað sem mig langar að ræða lýtur að hnökrum á framboðshlið og þróttmikilli eftirspurn. Það hafa verið hnökrar á framboðshlið varðandi byggingu íbúðarhúsnæðis og mikil eftirspurn er eftir íbúðarhúsnæði vegna stórkostlegrar fjölgunar þjóðarinnar. Í fjárlagafrumvarpinu kemur fram að í ár og á næsta ári á að setja í stofnframlög til húsnæðisbyggingar 7,3 milljarða. Það er sama tala og í fyrra, 7,3 milljarðar. Það kemur fram í töflu í frumvarpinu. (Forseti hringir.) En það á að byggja 1.000 íbúðir. Bara í Grindavík losnuðu 1.200 íbúðir (Forseti hringir.) samkvæmt forsætisráðherra í gær. Hvernig stendur á því að það er ekki verið að gera meira í húsnæðismálum, sérstaklega ef við (Forseti hringir.) horfum til þess að í Grindavík losna 1.200 íbúðir sem hverfa af markaðnum? Við erum hreinlega 200 íbúðir í mínus.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)