155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:43]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég vísa aftur til þeirra svara sem hafa verið gefin af hálfu ráðuneytisins við fyrirspurnum hv. þingmanns. En það er samt áhugavert að niðurstaða þingsins og ráðuneytisins, ef ég er að skilja hv. þingmann rétt, fari ekki í öllum atriðum saman og það gefur alveg tilefni til þess, að sjálfsögðu, ég get tekið undir það með hv. þingmanni, að skoða málið frekar. Ég hef ekkert á móti því þannig að það má taka þá umræðu og væri nú í sumum tilfellum kannski bara ekkert vitlaust að þingið og ráðuneytin myndu tala meira saman um ákveðin málefni þó svo að það hafi verið, alla vega í þeim tveimur ráðuneytum sem ég hef verið svo heppinn að fá að sinna, mjög gott samstarf á milli þingsins og ráðuneyta.