fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurningarnar. Þetta eru náttúrlega mjög nákvæmar spurningar sem fjalla um tilteknar framkvæmdir og ég vil bara árétta það að það er ekki á borði ráðuneytisins að bjóða út verk. Það er Vegagerðin sem sér um það. En samkvæmt nýjustu upplýsingum sem lúta að því sem hv. þingmaður veltir upp hér, varðandi mögulega flýtingu á Vestfjarðavegi, er gert ráð fyrir að Vestfjarðavegi um Gufudalssveit ljúki 2027 og Vestfjarðavegi um Dynjandisheiði væri hægt að ljúka 2026, en þá þyrfti að bjóða það út nú á haustmánuðum. Ég verð að segja að þetta skiptir gríðarlega miklu máli fyrir Vestfirði, sérstaklega af því að hv. þingmaður er að ræða Vestfirðina, og ekki síður Skógarstrandarveg og Snæfellsnesið líka. Það er gríðarlega mikilvægt byggðamál að samgöngur innan svæða séu ásættanlegar. Ég held að við eigum að hugsa meira um það hvernig fólk kemst um innan svæða heldur en að horfa fyrst og fremst til þess hvort fólk komist frá einstökum svæðum landsbyggðarinnar til höfuðborgarsvæðisins eða annarra þéttbýlissvæða.
Forgangsröðun framkvæmda er að finna í samgönguáætlun, eins og hv. þingmaður veit, og þar kemur til kasta þingsins. Samgönguáætlun fjallar um bæði forgangsröðun og framkvæmdatöflur og það er gríðarlega mikilvægt að við horfum þá alltaf á heildarmyndina og ekki síst með hliðsjón af þróun byggðar í landinu.