155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:43]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar sem fjölluðu að vísu ekkert um fjárlög ársins 2025 heldur um fyrri ákvarðanir. Ég ætla bara að leyfa mér að svara þessu með þessum breiðu pensilstrokum. Staðan er sú á Íslandi að það eru fáar ef einhverjar þjóðir í heiminum sem eru með jafn mikið af vegum, flugvöllum, brúm, höfnum o.s.frv. á hvern skattgreiðanda. Það er einfaldlega vegna þess að við erum stór eyja miðað við fólksfjölda. Við höfum mjög miklar væntingar. Okkar staða er mjög sterk efnahagslega, við viljum gera vel við okkar íbúa og standa traustum fótum í því. Við viljum jafna aðgengi að þjónustu o.s.frv. Við höfum væntingar sem þjóð og sem samfélag og við höfum líka væntingar til þess til framtíðar að samgöngur séu góðar og greiðar og það er okkar stefna að það sé þannig. En svo er líka spurning um það hvar við erum stödd í hagsveiflunni. Við vitum að innviðaskuldin er mikil og ekki síst við þau svæði sem hv. þingmaður nefnir hér. Við vitum að ástandið er víða ekki gott. Hér hafa verið nefnd jarðgöng og hér hafa nýframkvæmdir af ýmsu tagi verið nefndar, áætlanagerð o.s.frv. En við vitum líka að það sem er mikilvægast einmitt núna er að vinna bug á verðbólgu. Við getum lokið við ákvörðun sem tengist samgönguáætlun. Við þurfum að sjá inn í framtíðina, hvert við ætlum að fara. En ef við náum ekki tökum á verðbólgunni er sú áætlun líka vandamál. Þá verður hún líka vandamál og þær ákvarðanir sem við höfum tekið áður sem hv. þingmaður var að spyrja sérstaklega um. Ég vildi, virðulegi forseti, í þessu svari mínu setja áhyggjur hv. þingmanns í þetta samhengi.