fjárlög 2025.
Frú forseti. Fólki sem frestar læknisferðum vegna langra biðlista hefur fjölgað á síðustu mánuðum og mörg heimili bera óhóflegan kostnað af heilbrigðisþjónustu. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem voru kynntar á málþingi ASÍ um félagslegt heilbrigðiskerfi í gær. Ég vil í þessu samhengi koma sérstaklega inn á geðheilbrigðisþjónustu við börn sem var einmitt til umræðu hér rétt í þessu. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra um málefni Geðheilsumiðstöðvar barna sem heyrir undir heilsugæsluna. Þar hefur börnum sem bíða eftir þjónustu fjölgað umtalsvert á síðustu árum, eða úr 738 í desember 2021 upp í meira en 2.000 í ágúst á þessu ári. Nú hef ég átt orðastað áður við hæstv. ráðherra um stöðu sálfræðiþjónustu á heilsugæslustöðvum en Ríkisendurskoðun hefur bent á að fjölga þurfi verulega stöðugildum sálfræðinga til að mæta þeim markmiðum sem koma fram í aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum. Ég vil fá að spyrja hæstv. ráðherra hvernig þessari vinnu miðar og hvernig standi til að bæta þessa þjónustu, hverjar horfurnar séu á fjölgun stöðugilda á næstu árum.