155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:10]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Samkvæmt þingsályktun um stefnu um stuðning Íslands við Úkraínu 2024–2028, sem var samþykkt í apríl í vor, voru sett skýr markmið um stuðning okkar við Úkraínu og að þau skyldu vera hlutfallslega sambærileg við það sem gerist á öðrum Norðurlöndum. Það er raunar tvítekið í þeirri ályktun. Þrátt fyrir að framlög til Úkraínu hækki samkvæmt fjárlagafrumvarpinu, eins og hér hefur fram komið, bendir margt til þess að við séum víðs fjarri þessum markmiðum. Samkvæmt Kiel-stofnuninni, sem heldur úti gagnabanka yfir framlög til stuðnings við Úkraínu, voru framlög Norðurlanda eftirfarandi sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, en þá var miðað við tímabilið frá upphafi innrásarinnar til 30. júní síðastliðins: Danmörk 2%, Finnland 1,2%, Svíþjóð 1% og Noregur 0,5%, en Ísland dregur svo lestina samkvæmt þessari stofnun með 0,18%. Telur hæstv. utanríkisráðherra að sú viðbót sem kemur fram í þessu fjárlagafrumvarpi nægi til þess að stuðningur okkar við Úkraínu nálgist það sem gerist annars staðar á Norðurlöndunum og kveðið var á um í ályktun Alþingis? Svo langar mig líka að spyrja hvort stjórnvöld hafi látið vinna sjálfstæðan samanburð á stuðningi okkar við Úkraínu, aftur í samanburði við önnur Norðurlönd, og ef sá samanburður liggur fyrir, hvort hæstv. ráðherra geti sagt okkur frá honum.