fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svarið. Mig langar í seinni spurningu minni í þessari umferð að spyrja hæstv. ráðherra um aðildarmál sem nú er uppi í Norðurlandaráði sem lýtur að umsókn Færeyja og Grænlands um aðild að Norðurlandaráði. Ég vil minna á að Vestnorræna ráðið lýsti yfir stuðningi við aðild Færeyja og Grænlands að Norðurlandaráði en það virðist vera einhver tregða við að samþykkja það. Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort hún muni ekki beita sér fyrir því að þessi ríki fái fulla aðild að Norðurlandaráði. Það er mikilvægt að við gerum það til að styrkja hina vestnorrænu hlið á ráðinu. Þetta eru vestnorræn ríki sem eiga rétt á fullri aðild að þessu ráði, tel ég.
Í öðru lagi langar mig að varpa fram spurningu varðandi opnun sendiráðs í Madríd, sem er vel og ætti kannski að vera löngu komið; hvort ekki sé rétt að fara í einhvers konar kynningu á Íslandi og íslenskum vörum á Spáni samhliða þessari opnun sendiráðsins, hvort eitthvað slíkt sé (Forseti hringir.) fyrirhugað, og kynningu á þjónustu sendiráðsins gagnvart þeim Íslendingum sem búa á Spáni, Alicante og öðrum svæðum á Suður-Spáni.