155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:41]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra svörin. Ég vil í framhaldinu spyrja hæstv. utanríkisráðherra um það hvernig hún sjái fyrir sér þátttöku Íslands í mannúðaraðstoð á átakasvæðum á næstunni. Á hvaða svæði verður lögð mest áhersla í stuðningi og í máli Íslands á alþjóðavettvangi? Verður brugðist við stöðunni í Súdan og víðar? Getum við hjálpað þjóðinni sem var hrakin með hervaldi frá Nagorno-Karabakh héraði? Og hvert verður framhald stuðnings við palestínsku þjóðina og íbúa á Gaza?