155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:00]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Það er sannarlega þannig að flest lönd í kringum okkur eru að bæta í þegar kemur að útgjöldum til málaflokka tengdra utanríkismálum og það er hægt að segja að við séum að gera það ef við lítum til aukinna útgjalda í varnarmálum og í stuðningi við Úkraínu, við erum með aukinn metnað í þróunarsamvinnu og slíkt. En aðhaldskrafan er á, eins og hv. þingmaður nefndi, kerfið sem slíkt, sem þýðir að það skreppur þá aðeins saman en verkefnin halda áfram. Auðvitað þarf að passa að það sé jafnvægi í því varðandi þau verkefni sem fá fjármagn til þess að við getum látið þau verða að veruleika, að það sé fólk til að sinna þeim og sinna hagsmunum Íslands og Íslendinga í útlöndum. Við vitum það, hv. þingmaður og ég, og við öll hér í þessum sal að það er enginn sem passar upp á hagsmuni Íslands nema við sjálf og ef við gerum það ekki þá bara gerir það enginn nema við séum svo heppin að fylgja í hagsmunamati einhvers annars. Hins vegar þurfum við auðvitað að hafa augun á því að finna leiðir til að fara betur með annarra manna peninga og við verðum bara að vera skapandi í því. Ég ætla ekki að vera talsmaður þess að við eigum að gera það alls staðar og segja síðan að það sé engar slíkar leiðir að finna í utanríkisþjónustunni. Við þurfum að forgangsraða. Við þurfum að horfa á það hvaða verkefnum sem við erum að sinna er hægt að útvista og sömuleiðis mun þetta hafa áhrif á starfsmannahald sem er heldur ekki óeðlilegt og ef við værum með annars konar löggjöf um það allt saman þá værum við með meira svigrúm til að mæta þessu, en við verðum bara að finna leiðir til þess og gerum það.