fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og ég tek undir það að það er mikilvægt að efla lykilstofnanir ráðuneytisins á landsbyggðinni og fagna þeirri vegferð. Ekki síður þurfum við að fara að taka á þessu með langtímasýn fyrir náttúrustofurnar, að það sé ekki að gerast það sama á hverju ári, þetta er árviss viðburður, það þarf alltaf að draga þetta í land í fjárlagavinnunni og það þyrfti að ganga betur frá þessu til lengri tíma en ekki vera alltaf að þessu.
En mig langar til að spyrja sérstaklega um annað. Það varðar ójöfnuð í raforkukostnaði. Það er mikill ójöfnuður í raforkukostnaði í landinu, ekki síst við húshitun og við dreifingu raforku og er það ekki síst á milli þéttbýlis og dreifbýlis. Það er einnig sérstakt réttlætismál að jafna raforkukostnað þeirra sem búa á köldum svæðum gagnvart öðrum sem njóta til að mynda hitaveitu. Þá verður að forgangsraða orku í þágu heimila og á sanngjörnum kjörum þannig að ég spyr: Hyggst hæstv. ráðherra beita sér fyrir, og þá hvernig, (Forseti hringir.) frekari jöfnun raforkukostnaðar og því að heimilin njóti forgangs að ódýrri raforku?