fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég er hræddur um að ég hafi ekki fengið alveg nógu skýrt svar varðandi það hvað felst í því að endurskoða þessar alþjóðlegu skuldbindingar. Ég skil það sem svo að það sé Evrópuregluverkið. Oft er rætt um það hér í þingsal sem eitthvað íþyngjandi fyrir íslenskt atvinnulíf þegar raunin er sú að það er þátttaka Íslands í sameiginlegum innri markaði EES-svæðisins sem býr til samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Þegar kemur að grænni nýsköpun og grænni fjármögnun ætti að vera hagsmunamál íslensks atvinnulífs að staðlar, viðmið og stefnur Evrópusambandsins væru innleidd eins hratt og hægt er á Íslandi frekar en að við séum í stöðugum innleiðingarhalla. Og það að við eigum hér gnótt grænnar orku nú þegar — við ættum að líta á þetta sem styrkleika. Þetta gerir okkur auðveldara að ná í mark, ekki erfiðara.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Er meiningin þá að endurskoða samvinnu Íslands og Evrópusambandsins í loftslagsmálum og er það hægt án þess að tefla samningnum um EES-svæðið hreinlega í voða?