breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Virðulegi ráðherra. Hér hefur verið vakin athygli á því að búið er að taka fyrir, eða á að gera það, að nýta séreignarsparnað til að greiða niður höfuðstól húsnæðislána eftir áramót. Það hefur líka komið fram að ekki er eining um þetta í meiri hlutanum á þingi. Viðbrögð forsætisráðherra í fyrirspurnatíma áðan gefur tilefni til að ætla að þessu verði hugsanlega breytt á þann veg sem ætlast er til af minni hlutanum. Svo er það annað í þessu frumvarpi sem ber að nefna sem er málefni aldraðra sem heimilar ríkinu að verja fé úr framkvæmdasjóði til reksturs hjúkrunarheimila en ekki uppbyggingar. Blasir ekki við, hæstv. fjármálaráðherra, að það er bráðnauðsynlegt að byggja upp hjúkrunarheimili núna í ljósi hækkandi aldurs þjóðarinnar? Það hefur verið vanrækt og við þurfum að bæta stórlega í hvað þetta varðar.