155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

strandveiðar og atvinnufrelsi.

[14:06]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það ánægjulega við strandveiðina í sumar er að eins og við þekkjum þá hófst hún með talsverðri veiði og sem betur fer á öllum svæðum aldrei þessu vant, meira að segja fyrir norðan og austan sem hafa verið þau svæði sem hafa síst notið góðs af því fyrirkomulagi sem verið hefur undanfarin ár. Það byrjaði ágætlega og þegar A-svæðið komst ekki á sjóinn þá gaf kannski vel á C- og D-svæðunum. Ég vil líka halda því til haga að þrátt fyrir allt og þrátt fyrir þessa lagaumgjörð sem við erum með, og ég hef verið að fara innan 5,3% kerfisins, þá hefur aldrei verið meira í pottinum heldur en í sumar, að viðbættum þessum 2.000 tonnum sem urðu til þess að drýgja þetta. Ég er búin að eiga í góðu samtali við bæði LS og formenn og varaformenn Strandveiðifélags Íslands, ekki síst vegna þess að ég ætla að leggja fram mál um strandveiðarnar til þess að reyna að jafna þetta aftur. Miðað við það umhverfi sem við búum við núna tel ég ekki að við getum alfarið leyft frjálsar handfæraveiðar. Ég er t.d. ekki að leggja til breytingu í þá veru í frumvarpinu sem ég kem til með að leggja fram. Það er hins vegar samtal við þessa hagsmunaaðila um fyrirkomulagið, hvernig því verður best fyrir komið, þannig að við náum að einhverju leyti betri sátt heldur en verið hefur. Ég hef ekki aðrar upplýsingar en þær að ég tel ekki að það sé verið að brjóta á neinum. Þegar verið er að gefa heimildir til að veiða úr sameiginlegum auðlindum tel ég ekki að það sé verið að brjóta stjórnarskrá.