landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.
Forseti. Sem sérstökum áhugamanni um lögbundin verkefni og kostnað sem tengist þeim finnst mér áhugavert að það standi hér í greinargerð frumvarpsins að ekki sé gert ráð fyrir að lögfesting frumvarpsins hafi fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð og/eða eignastöðu; hvorki jákvæð eða neikvæð áhrif eða bara neitt. Þetta er vandamál sem við eigum í erfiðleikum með. Hvað kostar að mati stjórnvalda framkvæmd laga þegar við erum að samþykkja þau? Hver eru heildarumsvifin? Ég átta mig á því að hér er verið að breyta ákveðnu fyrirkomulagi sem er þegar í gangi og uppfæra þannig að nú þegar er verið að nota fjármagn í eitthvað álíka og setja styrkari lagastoð undir, en hversu mikið er það fjármagn? Það er það sem ég myndi vilja vita í þessari greiningu á mati á áhrifum: Hvert er umfangið nú þegar? Þá getum við áttað okkur á því að þarna er kannski um að ræða umtalsvert fjármagn sem væri hægt að spara á einhvern hátt með aðgerðum eða greinum í frumvarpinu sem myndu gera umsýsluna léttari. Þegar allt kemur til alls þá greiðum við atkvæði um fjárlagafrumvarpið og þegar við greiðum atkvæði um lög eins og þessi þá erum við að lofa ákveðinni þjónustu, ákveðnum skyldum á ríkið, ákveðnum réttindum sem birtast síðan ekki alltaf í fjárlagafrumvarpinu þegar allt kemur til alls. Það finnst mér bagalegt þannig að það væri gott ef hæstv. ráðherra gæti aðeins útskýrt fyrir okkur hvert er fjárhagslegt umfang þessara laga.