landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.
Forseti. Ég held að svarið sé í raun frekar einfalt. Hvaða stöðu myndum við vera í ef það væri gagnayfirtaka? Hvernig myndum við svara í því tilfelli? Við eigum ekki að segja að líkur á því séu svo litlar að það muni aldrei gerast. Það er ekkert ólíklegt að sérstaklega sé reynt að sækjast eftir þessum gögnum og þetta eru jafnvel líklegri gögn en önnur til að lenda í slíkum tilraunum.
Svo er annað vandamál tengt þessu að ég á mjög erfitt með að skoða mína sjúkraskrá, mína persónulegu sjúkraskrá. Ég gæti farið til læknis og fengið að horfa á skjáinn hjá honum þegar hann flettir henni upp en ég fæ hana ekki á Heilsuveru eða neitt svoleiðis, ég fæ ekki aðgang að minni eigin sjúkraskrá sem er líka áhugavert á einhvern hátt. Ég held að við þurfum að skoða þetta í aðeins stærra samhengi. Hvort það næst endilega í þessu frumvarpi, hvort þetta sé gott skref miðað við endurskipulagningu á núverandi fyrirkomulagi og hvort tilefni sé til að stilla þessa persónugreinanlegu þætti, þessa áhættu um aðgengi að gögnunum og aðgengi hvers og eins einstaklings að sinni sjúkraskrá, það verður bara að koma í ljós við umfjöllun nefndarinnar.