framlagning stjórnarmála og ummæli vararíkissaksóknara.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það var nú svoddan spurningaflóð sem kom hér frá hv. þingmanni og formanni Samfylkingarinnar áðan að á þeim takmarkaða tíma sem mér er skammtaður náði ég ekki að svara því öllu. Ég skal gera það hér með glöðu geði. Ég hef lagt fram þingmálaskrá mína þar sem eru ýmis mál. Ég hef farið gaumgæfilega yfir hana og þau mál væru ekki á minni þingmálaskrá ef ég ætlaði mér ekki að leggja þau fram, þannig að ég hef fullan hug á því að leggja fram þau mál sem eru á minni þingmálaskrá og mun gera það í vetur, enda eru þar mörg brýn og nauðsynleg mál sem ég tel að við þurfum að fara í.
Hv. þingmaður spyr um mál vararíkissaksóknara og ég hélt nú að ég hefði verið búin að svara hv. þingmanni um það fyrir einhverjum vikum síðan. Hvað varðar þá yfirlýsingu sem ég gaf út um að ummæli hans væru óviðunandi og myndu grafa undan trúverðugleika hans þá ætla ég að minna á það að æðstu embættismenn ákæruvaldsins á Íslandi verða að gæta þess í sínum störfum og sinni framkomu að gæta hlutleysis í öllum sínum orðum, því að málin eru margvísleg sem inn á þeirra borð koma og það verður að vera alveg skýrt að þeir séu hafnir yfir allan vafa í sínum störfum og að hver sá sem stendur frammi fyrir ákæruvaldinu geti treyst því að hann standi jafn öllum öðrum gagnvart lögunum.