155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

stefna ríkisstjórnarinnar vegna hörmunganna í Palestínu.

[15:41]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það vill svo til að í Heimildinni í dag birtist grein eftir mig um utanríkismál þar sem fjallað er um nákvæmlega málið sem hv. þingmaður tekur hér upp. Mig langar að segja í því samhengi að VG hefur frá upphafi, og það kemur raunar fram í þessari grein, verið ólíkur öðrum stjórnmálaflokkum á Íslandi að því leytinu til að við höfum alltaf haldið skýrt í friðarhyggjuna sem eina af okkar grundvallarstoðum. Þegar VG hefur setið í ríkisstjórn þá hefur það sýnt sig að sú seta, með þeim áherslum, hefur haft áhrif og áhersla okkar á friðarstjórnmál hefur haft áhrif. Þegar VG sat í ríkisstjórn 2009–2013 samþykkti Ísland Palestínu sem fullvalda sjálfstætt ríki. Við höfum tekið fullan þátt í viðskiptaþvingunum Evrópusambandsins gagnvart Rússlandi og fulltrúar Íslands hafa talað einarðlega gegn innrás Rússa og fyrir friði í Úkraínu. Við samþykktum í þessari ríkisstjórn að taka á móti tæplega 5.000 úkraínskum flóttamönnum vegna innrásar Rússa og að setja umtalsverða fjármuni í mannúðaraðstoð o.s.frv. (Forseti hringir.) Við megum ekki líta undan. Við megum ekki líta undan í því sem er að gerast á heimsvísu. Við megum ekki gefast upp fyrir vaxandi vopnaskaki (Forseti hringir.) sem því miður er orðið þannig að unga fólkið okkar er áhyggjufullt. Það er skelfingu lostið margt hvert. (Forseti hringir.) Þess vegna held ég að raddir sem tala fyrir friði hvarvetna séu nauðsynlegar.