sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni mjög góða spurningu sem tengist þessum rétti sem hefur hingað til verið tengdur Evrópuréttinum og stendur til að lögfesta hér. Almenni biðtíminn er 90 dagar, það á nánast við um allt, og ef viðkomandi þarf að bíða lengur er þessi Evrópuréttur til staðar og við höfum virt hann.
Jú, það er erfitt að leggja mat á einstaklinga en ég vísa í mjög góða skýrslu embættis landlæknis og helstu sérfræðinga á þessu sviði um gæðaverklag í kringum liðskipti. Hvernig það er metið hvað viðkomandi þarf að bíða lengi áður en hann þarf að fara í aðgerðina sem slíka, það getur verið teygjanlegt af því að stundum þarf að styrkja fólk og þar fram eftir götum og það þarf líka að skipuleggja endurhæfinguna. En forgangurinn er, og ég hef lagt mikla áherslu á það, að við nýtum okkar fólk hér til að gera þessar aðgerðir. Og við höfum helmingað biðtímann og þá er ég að tala um biðlistann í heild.