Starfsmannaleigur og vinnumansal.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál og öll erum við sammála um að það þarf að uppræta mansal á Íslandi og það á að refsa fyrir þessi svívirðilegu brot. Ég minnist þess að í einni af mínum fyrstu utanlandsferðum sem þingmaður tók ég þátt í ráðstefnu þar sem verið var að fjalla um glæpastarfsemi. Þar var því haldið fram, þetta er líklega árið 2017, að það að versla með fólk væri orðinn stærsti einstaki þátturinn í glæpastarfsemi, mun stærri heldur en til að mynda eiturlyfjasala. Þetta er auðvitað hryllilegt vandamál og hryllilegt að hugsa til þess að í nútímasamfélagi séu að eiga sér stað einhvers konar þrælasölur og flutningur á fólki, sem við héldum að væri bara einhvers staðar í fortíðinni. Ég get algerlega tekið undir það að betur má ef duga skal. En ég var býsna ánægð með það frumvarp sem við afgreiddum frá hæstv. ráðherra, sem varðar ýmsar breytingar á lögum vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði. Þar eru mikilvægir þættir og þar var til að mynda lögfest það verkefni sem hafði verið í gangi hér á höfuðborgarsvæðinu og hefur sýnt góðan árangur. En ég ætla líka að segja hversu mikilvægt það var að afgreiða breytingar á lögreglulögunum síðasta vor sem eykur heimildir lögreglu til að afla upplýsinga, vegna þess að þegar um mansalsbrot er að ræða þá er oft um annars konar brot að ræða líka. Þetta er skipulögð brotastarfsemi. Við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir skipulagða brotastarfsemi sem á sér engin landamæri. Þar þurfum við að treysta á lögregluna og samstarf við önnur ríki. En við þurfum líka að efla þær stofnanir hérlendis sem eiga að hafa eftirlit með þessari starfsemi. Ég tel að við höfum verið að gera það á síðustu misserum en það er alveg ljóst að við þurfum að hafa augun á boltanum. Þetta er risastór starfsemi, skipulögð starfsemi (Forseti hringir.) og við þurfum alltaf að fylgjast með og verja líf fólks (Forseti hringir.) sem er hér á landi og er fengið í þessi hræðilegu verkefni.