155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

skattar og gjöld.

300. mál
[11:03]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og skal þá bara finna þetta um gjaldtökuna af fiskeldinu, sem ég fann samt ekki við leit í fyrri bandorminum en við förum bara yfir það í nefndarstarfinu. Ráðherrann fór yfir það að hætta eigi við hækkun á veiðigjaldinu og færir fyrir því rök. Gott og vel, en þetta eru engu að síður tvær milljónir sem gert er ráð fyrir í forsendum fjárlaga. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Er eitthvað annað sem á að skera niður á móti eða hvernig er þetta hugsað? Mér finnst skipta máli þegar við förum inn í þessa vinnu að við séum öll í það minnsta meðvituð um hvað við er að fást. Svo hlakka ég til svarsins um reiknaða endurgjaldið.