155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

skattar og gjöld.

300. mál
[11:06]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er sammála hæstv. ráðherra um að ráðast þurfi í byggingu Ölfusárbrúar hið fyrsta. Mig langar til að spyrja — af því að við vitum að það er mikil þörf á að þessi brú verði byggð. Ráðherra nefnir hér hugsanlegan kostnað sem gæti lent á ríkissjóði og nefnir töluna 1,5 milljarða, ef ég heyrði rétt, í framkvæmd sem gæti kostað 14–15 milljarða. Erum við að sjá að Ríkisábyrgðasjóður sé sáttur við það að ríkissjóður ábyrgist 10% af hugsanlegum kostnaði við þessa framkvæmd eða þarf ríkissjóður að ábyrgjast stærri hluta en einhver 10% af framkvæmdinni?