almannatryggingar.
Herra forseti. Ég kem hér upp til að þakka hv. velferðarnefnd, til að þakka öllum þeim góðu þingmönnum og ráðherrum sem ég hef verið í sambandi við til þess að við gætum tekið höndum saman um þetta mál og gert það að veruleika. Það hefur verið mitt hjartans mál nú um allnokkurt skeið, það sem okkur hefur þótt sanngjarnt og eðlilegt, að fátækustu eldri borgararnir okkar fengju jólabónus um jólin og það er nákvæmlega það sem er að gerast núna. Það er ævinlega þegar við tökum höndum saman og brosum framan í hvert annað og sýnum að hjartað okkar er úr gulli sem okkur tekst að gera fallega hluti. Til hamingju við öll. Við erum snillingar.