um fundarstjórn forseta.
Virðulegi forseti. Ég vil nú byrja á því að þakka hæstv. forseta fyrir að taka tillit til óska okkar hér í gær vegna framlagningar fjármálaáætlunar, sem er stærsta mál nýrrar ríkisstjórnar. Ég veit ekki hvort þingmenn í stjórnarflokkunum átti sig á alvarleikanum sem er hér á ferð. Hér eru lög um opinber fjármál og mig langar bara að vísa í og hvetja hv. þingmenn til að kynna sér 5. og 20. gr., því að hér eru stórkostleg mistök. Það er um að ræða eitt af lykilatriðum fjármálaáætlunar sem vantar algerlega inn í skjalið, algerlega. Fjármálaráðherra stóð hér sjálfur í pontu og hafði þá trú að framlagningin væri með sama hætti og var í fyrra, sem er rangt. Hér ríkir lýðræði. Hér erum við öll kjörnir fulltrúar og við eigum rétt á því að standa hér og tala út frá okkar sannfæringu. Það er gríðarlega mikilvægt. Þetta er vettvangur lýðræðis og ég hvet okkur öll til að bera virðingu fyrir honum.