156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

um fundarstjórn forseta.

[11:21]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það er ástæða til að lýsa yfir ánægju með það að hæstv. forseti og hv. þingflokksformenn hafi komist að þeirri niðurstöðu í gær að fresta umræðu um fjármálaáætlun, eins og eðlilegt var. Ég tók því miður ekki eftir því hvort hv. þm. Sigurjón Þórðarson var viðstaddur fyrri ræðu mína hér undir liðnum störf þingsins en mér þykir tilefni til að benda hv. þingmanni á efni þeirrar ræðu vegna innleggs þingmannsins sjálfs í þá umræðu og hér aftur í pontu þar sem inntakið var að við þyrftum aðeins að átta okkur á og glöggva okkur á hlutverki Alþingis, glöggva okkur á eftirlitsskyldunni, á lýðræðislegri umræðu sem fer fram í þessum þingsal og að umskiptin gætu hafa verið erfið fyrir suma sem hafa verið embættismenn mjög, mjög lengi. Mér þótti tilefni til þess.