um fundarstjórn forseta.
Frú forseti. Fyrst vil ég þakka fyrir góða meðhöndlun hæstv. forseta á því máli sem upp kom í gær þar sem seinni hluta umræðu um fjármálaáætlun var frestað. Mér þótti það ágætlega leitt í jörðu. En ég vil bara koma hérna upp og leggja orð í belg hvað þetta varðar. Það hefur í rauninni alveg frá því í síðustu viku held ég að hafi byrjað að koma meldingar frá samfélagsmiðlum stjórnarflokka um einhverja meinta tafaleiki og málþóf þegar eðlileg umræða í 1. umræðu mála var í gangi. Hv. þm. Pawel Bartoszek, sem ég þakka hlý orð hérna áðan, var ekki alveg jafn blíður fyrir tveimur tímum síðan á Facebook en hv. þingmaður segir, með leyfi forseta:
„Fyrir vikið má búast við hefðbundnum tafaleikjum á næstu vikum. Umræðu um að „gögn vanti“, „málið þurfi meiri undirbúning“ og svo löngum ræðum í þingsal. Það má allt reyna. […] þau“ — sem sagt stjórnarandstaðan — „geta ekki lengur treyst á vandræði innan stjórnarliðsins …“ — Ágætt reyndar að það komi fram, áhugavert.
En ég bara hvet líka hv. stjórnarliða (Forseti hringir.) til að sýna hinu þinglega ferli tilhlýðilega virðingu, því að 1. umræðan er auðvitað eini snertipunktur stjórnarandstöðunnar við ráðherra í hverju máli fyrir sig. (Forseti hringir.) Það reynist oft torsótt að ná í skottið á þeim þegar síðar er komið í umræðu hvers máls.