um fundarstjórn forseta.
Forseti. Upplýsingar eru völd. Það að halda eftir upplýsingum skapar ákveðna óreiðu. Við verðum að hafa upplýsingar til að geta gagnrýnt. Ef við höfum ekki upplýsingar þá getum við ekki gagnrýnt. Við vitum að ríkustu fyrirtæki í heimi eru fyrirtæki sem safna upplýsingum. Það er ekkert nema sjálfsagt að minni hlutinn fái upplýsingar, tölfræðilegar upplýsingar í fjármálaáætlun þannig að við getum gagnrýnt hana. Ég skil vel að stjórnin vilji halda þessu fyrir sig þannig að við getum ekki fundið höggstað á stjórninni. En þetta er ekkert annað en einfalt valdatafl. Stjórnin ákveður að gera þetta svona. Ég vil segja við stjórnina að hún ætti í stað þess að koma hingað upp og gagnrýna okkur að taka til í sínum ranni, áður en hún fer að gera það.