um fundarstjórn forseta.
Virðulegur forseti. Þetta var alveg kostuleg ræða sem hv. þingmaður flutti hér á undan. Þessi ríkisstjórn er búin að bjóða okkur upp á stanslausan vandræðagang, eins og hv. þm. Pawel Bartoszek skrifar á sína samfélagsmiðla sem allir fjölmiðlar hafa verið að fjalla um og okkur í stjórnarandstöðunni er kennt um að vera upptekin af því. Þetta er bara það sem hæstv. ríkisstjórn og hv. stjórnarflokkar eru búin að bjóða okkur upp á. Svo loksins, loksins þegar það fara að koma einhver mál hér til umræðu í þinginu, loksins að við getum farið að nota þennan ræðustól hér sem málstofu, taka þátt í málefnalegri umræðu um hvernig við byggjum þetta samfélag hérna upp, þá er okkur brigslað um það að vera í tafaleikjum og tefja fyrir. Þora hv. þingmenn stjórnarflokkanna ekki að ræða málefnin sem þeir leggja fram? Skammast þeir sín fyrir málin? Er það kannski af því að þetta eru allt mál fyrri ríkisstjórnar eða? Ég bara bið hér um lýðræðislega umræðu. Þetta er málstofa og loksins fáum við að ræða stjórnmál hér og þá erum við skömmuð.