156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

um fundarstjórn forseta.

[11:28]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseta þykir rétt að benda hv. þingmönnum á að við höfum verið hér að störfum núna síðan 4. febrúar sl. Það er 4. apríl. Mér reiknast svo til að þetta séu tveir mánuðir og að frestur stjórnarflokka og ráðherra í ríkisstjórn til að skila inn stjórnarmálum hafi runnið út um helgina. Allt er þetta mjög eðlilegt, framgangur þingmála eins og hann á að vera, og ef eitthvað er þá hefur gengið betur að koma hér málum á dagskrá en oft áður og tala ég hér af nokkurri reynslu.