námsgögn.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um námsgögn frá hæstv. mennta- og barnamálaráðherra sem, ef ég hef skilið málið rétt, gengur svo til allsherjar- og menntamálanefndar. Ég vil nú byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að vera hér í þingsal og hlusta og taka þátt í umræðunni og koma í andsvör. Það er vel. Það er til fyrirmyndar.
Ég velti aðeins fyrir mér eftir að hafa hlustað á ræðu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur þar sem hún vék aðeins að fjárhagslegu umfangi: Ef allur pakkinn er skoðaður saman, öll ólík skólastig, getur hv. þingmaður tekið undir það sem þeim er hér stendur þykir kannski vera örlítið óljóst og eins og sumar umsagnir hafa líka gefið til kynna, eins og t.d. Samband íslenskra sveitarfélaga benda á, að ekki sé ljóst hver beri raunverulegan kostnað við framkvæmd laganna, ríki eða sveitarfélög? Og ef fjármögnun er óljós, getur það skapað óvissu og mismunandi framkvæmd milli svæða?
Eins langar mig að nefna að í kafla um ýmis ákvæði er í 12. gr. fjallað aðeins um gildistöku en þar segir, með leyfi forseta: „Lög þessi öðlast þegar gildi. Þó skal 4. gr. ekki öðlast gildi fyrr en 1. ágúst 2029.“ Þykir hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur þessi tímarammi, miðað við það markmið, sem er að sjálfsögðu göfugt, fullnægjandi?