156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[17:50]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir andsvarið. Jú, ég held að það væri gott að skoða fleiri þætti í starfsumhverfi fjölmiðla. Ef hægt er að létta á einhverju í þessu þá er það almennt betra, að vera ekki að eyða tíma í íþyngjandi spurningar, skýrslugjafir og annað slíkt. Samt sem áður þarf með einhverjum hætti að meta þessa hluti. Ef við erum að veita fé í eitthvað þá þurfum við að skoða hvernig það fé nýtist. Ég játa bara á mig þekkingarleysi á því hvort fjölmiðlanefnd sé að athuga eitthvað með það. En almennt vil ég létta á regluverki í kringum svona hluti þannig að fólk fái bara að starfa óáreitt eins og mögulegt er. En svo að ég svari því kannski þá er ég bara almennt á móti því, með ríkisstyrki og fjölmiðla, að einhverjar stofnanir, einkafyrirtæki, séu ríkisstyrkt. Við sjáum bara hvað gerist. Við erum með fjölmiðla sem stökkva bara á einhvern vagn þegar í harðbakkann slær, þegar við þurftum mest á því að halda að þeir væru hlutlægir og hlutlausir. Við sáum það t.d. í Covid, hvernig fréttaflutningurinn var af þeim málum, hvað hann var einhliða, hvað hann var gagnrýnislaus og sérstaklega kannski af hálfu þeirra sem mest hefðu átt að gagnrýna og setja sig djúpt inn í málið. Ég veit ekki hvort þetta svaraði spurningu hv. þingmanns en þá bara spyr hún aftur.