Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:04]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Þetta var 1994 sem Snæfellsbær verður til. Þá var ég skiptinemi í Bandaríkjunum og það eru sirka 50 ár síðan held ég, svona tæplega. En þetta eru svona loforð, svona dúsur sem er dinglað framan í þá sem hafa verið sveltir um innviðaframkvæmdir lengi og síðan gerist það í ofanálag að þær vegaframkvæmdir sem þegar hafa orðið drabbast niður í viðhaldsleysi. Auðvitað hugnast þetta einhverjum: Jæja, við fáum þetta þá aðeins fyrr en annars yrði. En sagan segir að það sé afskaplega lítið hald í þessum loforðum. Án þess að í því sé bein spurning þá er sagan utan af Snæfellsnesi um það hversu langan — það er nýbúið að klára Fróðárheiði, (Gripið fram í.)til þess að gera, sem sagt lokaáfangann, nýbúið. Af því að fyrrverandi samgönguráðherra situr hér í salnum (Forseti hringir.) og ég man ekki … (Gripið fram í.)— sem ýtti lokakaflanum í framkvæmd, já. (Forseti hringir.) Trúir hv. þingmaður því að þessari tvöföldun veiðigjaldanna (Forseti hringir.) verði í raun varið sem viðbót til innviðaframkvæmda í vegagerð á nærsvæðum þeirra sem helst verða fyrir?