156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[19:08]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Bara þannig að það sé alveg skýrt: Það er stefna ríkisstjórnarinnar og það er stefna okkar að styðja við Úkraínu og horfa á þær aðstæður sem Úkraína stendur frammi fyrir, bæði núna þegar kemur að hernaði og verja landið en líka erum við reiðubúin til að gera það sem þarf til að taka þátt í því að byggja upp Úkraínu þegar stríðinu er lokið. Tvíhliða þróunarsamvinna er og hefur alltaf verið lykilþáttur í þróunarsamvinnu Íslands og við erum með sendiráð á þremur stöðum í Afríku til þess að fylgja eftir bæði þeim verkefnum sem eru þar en ekki síður hitt, til þess að halda uppi einhverjum tengslum við þessa ört stækkandi og vaxandi álfu og mikilvægi hennar af því að þau starfa líka með okkur í alþjóðastofnunum. Ég horfi alla vega á heiminn stóran þannig að það er mjög mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að eiga í góðum samskiptum við lönd í öllum heimsálfum og líka að gera það sem þarf til að reyna að minnka örbirgð og neyð af því að það bitnar á heiminum öllum. Sama hvað við reynum að segja nei við, eins og með stríðið í Úkraínu, það er líka okkar stríð að mínu mati, af því að við erum að verja frelsið, lýðræðið og grundvallargildi þess sem vestræn lýðræðisríki standa frammi fyrir.

Ég tek alveg heils hugar undir með hv. þingmanni, Hamas á bara að sleppa gíslunum, ekki spurning, og það er m.a. hluti af því sem við sögðum, utanríkisráðherrar, að það er algjört skilyrði að þeir verða að sleppa gíslunum. En við skulum ekki gleyma því að það er búið að vera hernám frá 1967. Og það er líka skýr stefna Íslands að við styðjum tveggja ríkja lausnina. Ég styð og hef alltaf stutt Ísrael. Ég styð það að Palestína verði frjáls og sjálfstæð og óháð og ég styð leiðina að tveggja ríkja lausn og ég held að það skipti mjög miklu máli.

En ég vil gjarnan undirstrika það líka, af því að hv. þingmaður fór yfir í UNRWA, að UNRWA er bara svolítið sérstök Sameinuðu þjóða-stofnun sem veitir þjónustu sem er sambærileg ríkisþjónustu; hún er að tryggja menntun, hún er að tryggja heilbrigði. Og þau komast ekki að með þúsundir trukka sem eru búnir að bíða núna í næstum því 70 daga með neyðarbirgðir inn á svæðið. (Forseti hringir.)

En mig langar að spyrja: Hver er sýn hv. þingmanns? (Forseti hringir.) Er það eins ríkis lausn eða er bara best að taka Trump á þetta og henda fólki út af Gaza? Að mínu mati þarf Ísland að tala skýrt. Það er verið að brjóta alþjóðalög, (Forseti hringir.) það er verið að fremja stríðsglæpi og við eigum ekki að halda kjafti þegar svo ber undir.