156. löggjafarþing — 53. fundur,  4. júní 2025.

Störf þingsins.

[15:22]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Það er hávær krafa í samfélaginu um að tekið verði myndarlega á málum sem lúta að landamærum landsins. Hæstv. forsætisráðherra sló nýjan tón þegar hún tók við stjórnartaumunum í Samfylkingunni, losaði sig við ofstækisfyllsta fólkið í flokknum og tókst að telja mönnum trú um að til stæði að taka upp svipaða stefnu í málefnum hælisleitenda og annars staðar á Norðurlöndum, t.d. í Danmörku. Og skyndilega jókst fylgið margfalt.

Nú hefur komið skýrt í ljós að hugur fylgir ekki máli á vettvangi Samfylkingarinnar í þessum efnum. Um tóman blekkingaleik er að ræða. Stefna Samfylkingarinnar hefur verið opinberuð. Þeir sem ekki fá hæli hér eftir venjulegum leiðum í gegnum lögmæt stjórnvöld geta gargað og gólað á torgum og þá er þeim af Samfylkingunni lofað skjótri afgreiðslu í gegnum þingið án þess þó að þingið hafi enn um það fjallað. Helst er að heyra að Samfylkingin hafi tekið við keflinu af Pírötum og Vinstri grænum í þessum efnum. Þetta er afgreiðslan sem Viðreisn og Flokkur fólksins láta nú yfir sig ganga.

Frú forseti. Hæstv. dómsmálaráðherra Viðreisnar boðaði einnig nýja stefnu á landamærunum. Ekki tókst betur upp en svo að hennar fyrsta verk var að segja upp lögreglustjóranum á Suðurnesjum sem var í fararbroddi þeirra embættismanna sem vildu þó fylgja þeim götóttu og handónýtu útlendingalögum sem við sitjum enn uppi með.

Kjósendur sýndu hug sinn í verki með eindregnum hætti í síðustu kosningum með því að reka öfgafyllstu flokkana í þessum málaflokki af þingi og halda þeim þriðja utan þings. Þeir voru bókstaflega leiddir héðan út.

Frú forseti. Um eitt er ekki að villast; við þurfum tafarlaust að fara umbætur í þessum málaflokki. Miðflokkurinn mun áfram standa vaktina í þessum efnum. Því geta landsmenn treyst.